Hótel Selfoss
Frábært úrval veislusala fyrir allar tegundir viðburða ásamt veisluþjónustu.
Um okkur
Hótel Selfoss býður upp á fundar- og veislusali fyrir allt að 450 manns í sæti. Aðstaðan er glæsileg með fyrsta flokks tækjabúnað og hljóðkerfi sem henta fundarhópum af öllum stærðum fyrir ráðstefnur, árshátíðir, veislur og mannfögnuðum af öllum toga. Fundasalirnir eru staðsettir á annarri hæðinni, aðal salurinn er 300 fermetra og inniheldur stórt svið sem rúmar hljómsveit eða aðrar uppákomur ásamt dansgólfi. Þessi fjölbreytni býður upp á fyrirtaks aðstöðu ekki bara fyrir ráðstefnur heldur einnig fyrir brúðkaup og veislur þar sem tónlist og dans eru í fyrirrúmi. Starfsfólk hótelsins leggur mikla áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu og frábærar samsetningar af veitingum fyrir alla. Einnig getum við aðstoðað að skipuleggja hvataferðir og afþreyingu fyrir hópa sem koma til okkar.
Þjónusta
- Ráðstefnur & fundir, Tilvalið fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Tökum allt að 400 manns í sæti. Við erum með frábært úrval veitinga, fundarveitingar, smáréttir, hádegis- og kvöldverðir og hlaðborð. Salirnir bjóða upp á mismunandi uppsetningu, hringborð, langborð, skólastofa, U-laga, bíósalur og fleira. Við erum með fjölbreytt rými sem henta vel fyrir ráðstefnur þar sem nokkur erindi eru á dagskrá á sama tíma. Allir okkar salir eru með hljóðkerfi og skjávarpa.
- Árshátíð, Tilvalið fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Tökum allt að 400 manns í sæti. Við erum með frábært úrval veitinga, allt frá smáréttum yfir í þriggja rétta hátíðarkvöldverð.
Hafa samband
Eyravegur 2, Selfoss
Senda fyrirspurn
Skoða á ARVO
Knúið af ARVO